Formúla 1

Sáttaleið reynd á síðustu stundu

Samtök Formúlu 1 liða funda með FIA í dag til að reyna leysa deilumál.
Samtök Formúlu 1 liða funda með FIA í dag til að reyna leysa deilumál. mynd: kappakstur.is

FIA, alþjóðabílasambandið og FOTA, samtök keppnisliða ætla reyna semja til þrautar í dag um reglur og tilhögun á Formúlu 1 málum fyrir 2010 á fundi í London í dag.

FIA tilkynnir á morgun hvaða 13 lið fá þátttökurétt í Formúlu 1 á næsta ári, en 8 lið eru upp á kant við FIA vegna reglna sem sambandið hefur tilkynnt að verði raunin á næsta ári. Liðin átta vilja ekki útgjaldaþak og tvískiptar reglur.

Max Mosly fundar þessa stundina með forráðamönnum keppnisliða, til að reyna leysa hnútinn og fara samningaleiðina. Fundurinn var kallaður til á síðustu stundu.

Flest liðanna sem keppa í Formúlu 1 í dag eru styrkt af bílaframleiðendum eða í eigu þeirra og þau hafa gefið í skyn að ný mótaröð komi til greina. Það er trúlega þó pólitík til að skapa þrýsting á FIA.

Næsta mót er á Silverstone um aðra helgi og Jenson Button verður á heimavelli, en hann hefur nokkuð gott forskot í stigakeppni ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×