Lífið

Friðrik með barnamynd um leiðtogafundinn

Freyr Gígja Gunnarsson skrifar
Friðrik Þór er að skrifa handrit þar sem leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs er í aukahlutverki en tveir krakkar, klæddir upp sem geimverur, eru í aðalhlutverki. Leiðtogafundurinn hafði mikil áhrif á Ísland enda kom hann landi og þjóð á heimskortið.
Friðrik Þór er að skrifa handrit þar sem leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs er í aukahlutverki en tveir krakkar, klæddir upp sem geimverur, eru í aðalhlutverki. Leiðtogafundurinn hafði mikil áhrif á Ísland enda kom hann landi og þjóð á heimskortið.
Friðrik Þór Friðriksson hyggst gera kvikmynd um leiðtogafundinn sem þeir Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjov sóttu í Höfða árið 1986 og kom Íslandi á heimskortið. Friðrik ætlar að vera á undan Hollywood.

„Börn eru í aðalhlutverkum en ef myndin heppnast vel mun hún höfða til alls mannkyns,“ segir Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri. Hann er að skrifa handrit að kvikmynd þar sem leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs er í forgrunni. Aðalpersónurnar eru þó ekki þessir valdamiklu menn heldur börn sem klæða sig upp í líki geimvera og vilja komast í tæri við þá.

„Þær fá afa sinn til að byggja geimskip og þetta heppnast allt svona rosalega vel að þeir koma bara um hæl,“ útskýrir Friðrik. Sannar­lega óvænt og óvenjuleg nálgun á þennan merkisatburð í sögu þjóðarinnar. „Þetta snýst síðan upp í hálfgerð réttarhöld þeirra yfir þeim Reagan og Gorbatsjov og börnin verða miklir áhrifavaldar á þessum fundi. Mesta spennan snýst síðan um hvort þetta athæfi komist upp eður ei.“

Leiðtogafundurinn kom Íslandi á kortið, í orðsins fyllstu merkingu. Heimspressan beindi kastljósinu að þessu litla landi í norðurhöfum á meðan leiðtogarnir tveir ræddu um hugsanlega þíðu í kalda stríðinu. Friðrik man sjálfur ákaflega vel eftir þessum tíma. „Já, við vorum að gera Skytturnar á þessum tíma, vorum í næsta húsi með þrjár kóreskar vélbyssur. En það komst aldrei upp.“

Barnamynd Friðriks er reyndar ekki eina myndin um leiðtoga­fundinn sem er í smíðum því breski leikstjórinn Ridley Scott hefur þegar lýst yfir að hann hafi mikinn áhuga á að gera kvikmynd um leiðtogafundinn. Friðrik er hins vegar hvergi banginn. „Ég verð bara að vera á undan honum.“

Hugmyndin að þessari allsérstæðu kvikmynd er nokkuð gömul að sögn Friðriks og hefur verið lengi í kollinum á honum. Leikstjórinn kveðst þó ekki vita hvenær hægt verði að fara af stað, það verði þó fyrr en síðar. Af öðrum málum leikstjórans er það að frétta að Mamma Gógó er að fara út í hljóðblöndun en hún verður frumsýnd í janúar. „Þetta verður smellur. Annars verð ég fyrir vonbrigðum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.