Körfubolti

Tveir stórleikir í Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Ingimundarson mætir sínum gömlu félögum í Keflavík.
Sigurður Ingimundarson mætir sínum gömlu félögum í Keflavík.
Dregið var í dag í fjórðungsúrslit karla og kvenna í Subway-bikarkeppni karla. Leikirnir fara fram 16. og 17. janúar.

Í karlaflokki mætir Keflavík grönnum sínum í Njarðvík en aðeins úrvalsdeildarfélög voru í pottinum nú.

Stórleikurinn í kvennaflokki er viðureign Keflvíkinga og Hamars en síðarnefnda liðið sló út topplið Iceland Express-deildar kvenna, KR, í 16-liða úrslitunum.

8-liða úrslit kvenna:

Fjölnir - Laugdælir

Keflavík - Hamar

Njarðvík - Þór, Akureyri

Snæfell - Haukar

8-liða úrslit karla:

Snæfell - Fjölnir

Keflavík - Njarðvík

Tindastóll - Grindavík

Breiðablik - ÍR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×