Formúla 1

Schumacher: Formúla 1 þarf Ferrari

Michael Schumacher varð sjöfaldur meistari í Formúlu 1, fimm sinnum með Ferrari.
Michael Schumacher varð sjöfaldur meistari í Formúlu 1, fimm sinnum með Ferrari. Mynd: Getty Images

Mitt í deilum FIA, alþjóðabílasambandsins og FOTA, samtaka keppnisliða um framtíð Formúlu 1 hefur Michael Schumacher kveðið sér hljóðs. Hann segir að FIA verði að hafa bílaframleiðendur með sér, ekki á móti.

"Það er ekki spennandi að upplifa deilur innan Formúlu 1 geirans, íþrótt sem ég hef elskað og stundað hálfa ævi mína. Ferrari nafnið er stórt í Formúlu 1 og það er af og frrá að Formúla 1 hafi efni á að misssa það eða aðra bílaframleiðendur.

Menn verða að finna lausn á þessu deilumáli. Það er eitt að hafa framtíðar markmið til sparnaðar, en það þarf að taka það í mörgum skrefum. Það er ekki hægt að snúa öllu á hvolf á einum deg", sagðii Schumacher

Deilan snýst um hvaða fjárhæð keppnislið mega verja í reksrarkostnað, FIA vill færa kostnaður niður um 80% á milli ára en keppnislið sem keppa í dag telja það mjög óraunhæft og hóta að hætta. FIA birtir á föstudag lista yfir hvaða lið fá blessun sambandsins varðandi keppnisleyfi 2010.

Í síðustu viku sendu 9 líð FIA orðsendingu þar sem þau standi saman öll sem eitt og sæki sameiginlega um þátttöku á næsta ári. Force India dró sig síðan úr þeim hópi og var vísað tímabundið úr FOTA, samtökum keppnisliða. Sama henti Williams. FIA sendi síðan frá sér yfirlýsingu í gær þar sem skorað er á liðin átta sem eftir standa að sækja um í sínu nafni, hvert og eitt lið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×