Formúla 1

Massa hótar að hætta í Formúlu 1

Felipe Massa gengur af fundi hjá Formúu 1 keppnisliðum í Tyrklandi.
Felipe Massa gengur af fundi hjá Formúu 1 keppnisliðum í Tyrklandi. mynd: getty images

Felipe Massa hjá Ferrari segir að það sé sannkölluð matröð að keppa í Formúlu 1 þessa dagana og deilur keppnisliða og FIA séu að setja neikvæðan svip á íþrótt sem hann unnir. Ökumenn funduðu um málið með forráðamönnum keppnisliða í gær til að sýna samhug í verki.

"Það er martröð að upplifa deilurnar á milli keppnisliða og FIA. Við erum á þeirri skoðun að það sem Max Mosley er að mælast til að verði gert muni breyta Formúlu 1 í eitthvað allt annað en okkar íþrótt, sem við höfum stundað", sagði Massa um málið.

"Við viljum keppa í bestu kappakstursmótaröð sem völ er á. Það þýðir að við séum með öflugustu kappakstursbílanna, mestu tæknina og bestu ökumennina. Að Formúla 1 standi undir nafni. Ef menn ætla að hafa tvenns konar bíla og lið með breyttum reglum þá er illa fyrir okkur komið. Ég mun þá keppa í einhverri annari mótaröð og það sama segja aðrir ökumenn", sagði Massa.

FIA fer í vikunni yfir umsóknir 20 keppnisliða sem vilja keppa í Formúlu 1 á næsta ári, en 10 þeirra eru frá liðum sem keppa í ár. Af þeim eru átt lið sem hafa mótmælt fyrirhuguðum reglubreytingum. Sáttafundur er boðaður eftir næstu helgi að sögn Ólafs Guðmundssonar sem ræddi málið á undan beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í gær. Hann var dómari á Formúlu 1 mótinu í Tyrklandi um helgina

 

Allt um Felipe Massa


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×