Formúla 1

Ólafur dæmir Formúlu 1 í Tyrklandi

Ólafur  Guðmundsson er í sólinni í Istanbúl og dæmir Formúlu 1 mótið um helgina.
Ólafur Guðmundsson er í sólinni í Istanbúl og dæmir Formúlu 1 mótið um helgina.

Ólafur Guðmundsson verður einn þriggja dómara á Formúlu 1 mótinu í Istanbúl Í Tyrklandi um helgina. Hann verður á brautinni í dag að skoða aðstæður fyrir mótið sem Felipe Massa hefur unnið þrjú mót í röð.

Ólafur dæmdi á fyrsta móti ársins eins og frægt varð, en þá sagði Lewis Hamilton ósatt í vitnaleiðslum eftir aksturs atvik í brautinni í Ástralíu og McLaren og Hamilton var refsað fyrir af mikilli hörku. Þurfti Ólafur að fljúga alla leið til Malasíu til að yfirheyra Hamilton á ný og liðsstjóra hans Dave Ryan, sem var svo rekinn frá McLaren vegna málsins.

Þrír dómarar eru á hverju Formúlu 1 móti og komast að sameiginlegri niðurstöðu þegar einhver atvik koma upp. Þeir eru staðsettir í stjórnturni mótsins og vinna undir leiðsögn Charlie Whiting hjá FIA.

Ólafur var einmitt á löngum fundi með honum í gærkvöldi ti að ræða stöðuna í Formúlu 1, en miklar hræringar eru í gangi þessa dagana. Rætt verður við Ólaf í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport kl. 20.00 í kvöld.

Felipe Massa hefur unnið mótið í Istanbúl síðustu þrjú ár og stefnir á sigur og veitir ekki af því Brawn og Jenson Button hafa unnið 5 mót af 6 á þessu ári. Button er með 16 stiga forskot á Rubens Barrichello í stigakeppni ökumanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×