Körfubolti

Þorsteinn í raðir Blika á ný

Einar Árni og félagar í Blikum hafa fengið liðsstyrk
Einar Árni og félagar í Blikum hafa fengið liðsstyrk

Spútnikliði Breiðabliks í Iceland Express deildinni hefur borist góður liðsstyrkur en Þorsteinn Gunnlaugsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Blika á ný.

Þorsteinn hóf leiktíðina með Skallagrími í Borgarnesi og skoraði þá 17,2 stig og hirti 5,4 fráköst að meðaltali í þeim fimm leikjum sem hann spilaði fyrir Borgnesinga. 

Þorsteinn lék síðast með Blikum fyrir einu og hálfu ári þegar liðið var í 1. deildinni.

Frá þessu var greint á heimasíðu Breiðabliks, en þar kemur einnig fram að liðið sé að endurheimta þá Hjalta Vilhjálmsson og Emil Jóhannsson úr meiðslum.

Af þessu mætti ætla að lið Breiðabliks gæti átt eftir að halda áfram að stríða andstæðingum sínum í Iceland Express deildinni fram á vorið, en liðið hefur komið mikið á óvart í vetur.

Blikar sitja í sjöunda sæti deildarinnar eftir sigra í fimm af ellefu leikjum á fyrri helmingi mótsins. Liðinu var spáð falli í haust. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×