Bíó og sjónvarp

Konur á rauðum sokkum hlaut Einarinn á Skjaldborg

Góð stemning myndaðist þegar boðið var til fiskiveislu í Sjóræningjahúsinu, þar sem Maja Ragnars og aðstoðarkokkar hennar fóru á kostum í eldhúsinu.
Góð stemning myndaðist þegar boðið var til fiskiveislu í Sjóræningjahúsinu, þar sem Maja Ragnars og aðstoðarkokkar hennar fóru á kostum í eldhúsinu.
Það ríkti góð stemning á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina þar sem hátíð íslenskra heimildarmynda, Skjaldborg, fór fram í þriðja sinn.

Um þrjátíu heimildarmyndir voru sýndar á kvikmyndahátíðinni, bæði örstuttar og í fullri lengd, en á Skjaldborg er lagt upp með að sýna heimildarmyndir sem öðruvísi kæmu ekki fyrir augu almennings.

Myndin Konur á rauðum sokkum eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2009, en í myndinni er saga einnar umdeildustu og litríkustu hreyfingar Íslandssögunnar sögð.

Fólk tók vel til matar síns í Sjóræningjahúsinu.
Grímur Hákonarson og Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmenn voru meðal gesta á Skjaldborg og létu sig ekki vanta í fiskiveisluna.
Kynnir Skjaldborgar, Teitur Atlason, gaf gestum skýringar á dagskrá hátíðarinnar en um þrjátíu myndir voru sýndar.
Kvikmyndagerðarmennirnir Dagur Kári og Ari Alexander voru hressir á Skjaldborg á Patreksfirði.
Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr sigurmyndinni, Konur á rauðum sokkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.