Lífið

Búa til Pringles-auglýsingu í höfuðborg Argentínu

á leið til argentínu Samúel Bjarki og Gunnar Páll ætla að taka upp Pringles-auglýsingu í Argentínu.
á leið til argentínu Samúel Bjarki og Gunnar Páll ætla að taka upp Pringles-auglýsingu í Argentínu.

Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson ætla að leikstýra Pringles-auglýsingu í Argentínu. Um eitt hundrað manns starfa við verkefnið.

„Það verður rosafínt að fara í þrjátíu stiga sumar í Argentínu, sérstaklega þegar það er byrjað að snjóa hérna,“ segir Samúel Bjarki Pétursson auglýsingaleikstjóri. Næsta verkefni hans og félaga hans, Gunnars Páls Ólafssonar, verður af stærri gerðinni því eftir helgi fljúga þeir til Buenos Aires til að taka upp nýja sjónvarpsauglýsingu fyrir Pringles-snakkframleiðandann. Öllu verður tjaldað til við framleiðsluna því um eitt hundrað manns munu starfa við auglýsinguna. Um alheimsherferð er að ræða og hefjast sýningar á auglýsingunni í janúar.

„Þetta kom til í gegnum fyrirtæki sem við erum hjá í Bandaríkjunum, Crossroads. Þeir eru að vinna svolítið fyrir fyrirtækið Procter & Gamble sem framleiðir nánast aðra hverja snyrtivöru og matvöru í heiminum. Við kepptum á móti fjölmörgum leikstjórum og unnum þá baráttu,“ segir hann en vill ekkert gefa upp um launaávísunina sem fylgdi með í kaupunum.

Procter & Gamble er með höfuðstöðvar í Ohio í Bandaríkjunum. Á síðasta ári var fyrirtækið það áttunda stærsta í heiminum ef tekið er tillit til markaðssvæðisins sem það nær til og það fjórtánda stærsta í Bandaríkjunum hvað hagnað varðar. Árið 2007 eyddi það mest allra fyrirtækja í auglýsingar í Bandaríkjunum og tvöfalt meira en General Motors. Það er því ljóst að mikið er undir hjá Samúel Bjarka og Gunnari Páli í Argentínu og verður fróðlegt að fylgjast með útkomunni.

Þeir félagar hafa haft nóg að gera undanfarin ár í auglýsingabransanum. Nýverið komu þeir heim frá Rúmeníu þar sem þeir tóku upp bjórauglýsingu og hérna heima gerðu þeir Sex vina-auglýsingarnar fyrir Símann. Fyrr á árinu fengu þeir hin virtu Telly Awards-verðlaun fyrir auglýsingu sem þeir gerðu fyrir raftækjaframleiðandann Samsung.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.