Bíó og sjónvarp

Stóra planið til Rotterdam

Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Stóra planið, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam en hún er svokölluð A-hátíð.
Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Stóra planið, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam en hún er svokölluð A-hátíð.

„Þetta er stór hátíð og ég hlakka mikið til," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson en kvikmynd hans, Stóra planið, verður meðal mynda á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Sem þykir mikill heiður. Myndin verður sýnd í svokölluðum spectrum-hluta en Ólafi til halds og trausts verða meðal annars leikarar úr myndinni og framleiðendurnir Stefan Schaefer og Michael Imperioli en sá síðarnefndi lék einmitt glæpaforingjann Alexander í Stóra planinu.

Imperioli þessi er þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum um Sopranos-fjölskylduna sem sýndir voru á RÚV. Ólafi og honum hefur orðið vel til vina og íslenski leikstjórinn klippti meðal annars stikluna fyrir kvikmynd Imperioli, The Hungry Ghost, sem einnig verður sýnd á Rotterdam-hátíðinni. „Hann fékk ekki mikið greitt fyrir framlag sitt til Stóra plansins og mér fannst alveg sjálfsagt að launa honum greiðann með þessum hætti."

Leikstjórinn er ekki búinn að taka ákvörðun um hvað hann tekur sér næst fyrir hendur. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að hann ætli að klippa Stóra planið í sjónvarpsþáttaröð en Ólafur vísar því á bug, ekkert slíkt hafi komið til tals. „Ég er bara að dúlla mér hérna heima, er með handrit í vinnslu og annað slíkt. En ekkert hefur verið ákveðið."- fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×