Sport

Auðunn Jónsson í sviðsljósinu á morgun á HM í kraftlyftingum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Auðunn Jónsson, kraftlyftingamaður úr Breiðabliki.
Auðunn Jónsson, kraftlyftingamaður úr Breiðabliki. Mynd/Kraftlyftingadeild Breiðabliks

Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson úr Kraftlyftingadeild Breiðabliks verður í eldlínunni í fyrramálið þegar hann keppir yfirvigt (125+ þyngdarflokki) á Heimsmeistaramóti alþjóða kraftlyftingasambandsins (IPF).

Indverska kraftlyftingasambandið heldur mótið að þessu sinni en þetta er í 39. skipti sem mótið er haldið í karlaflokki og fer mótið nú fram í borginni Nýju Delí á Indlandi.

Auðunn keppir kl. 6.30 að íslenskum tíma en mótið klárast á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×