Körfubolti

KR yfir í Keflavík - Logi með sýningu í Grindavík

Logi Gunnarsson setti sjö þrista í fyrri hálfleik í Grindavík
Logi Gunnarsson setti sjö þrista í fyrri hálfleik í Grindavík

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í Iceland Express deild karla í körfubolta.

KR-ingar hafa góða forystu gegn Keflvíkingum í Keflavík 50-36 í hörkuleik sem sýndur er beint á Stöð 2 Sport.

Grindavík hefur yfir gegn Njarðvík 68-49 þar sem Nick Bradford er að spila sinn fyrsta leik fyrir Grindavík. Logi Gunnarsson skoraði hvorki meira né minna en 27 stig fyrir Njarðvík í fyrri hálfleik og hitti úr 7 af 10 þristum.

Staðan hjá Breiðablik og Þór er hnífjöfn 42-42 og Snæfell hefur yfir gegn grönnum sínum í Skallagrími 43-34.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×