Lífið

Fox fær ekki að vera með

Megan Fox
Megan Fox
Innanbúðarmenn sem vinna að þriðju kvikmyndinni um Transformers-vélmennin segja að leikstjórinn Michael Bay ætli hugsan­lega að láta persónu Megan Fox deyja í næstu mynd.

„Hlutverk Megan verður væntanlega mjög lítið í næstu Transformers-mynd. Michael uppgötvaði Megan og gerði hana að stjörnu og nú er hann í rólegheitunum að leita að leikkonu til að koma í hennar stað. Hann er ekki búinn að taka endanlega ákvörðum um hvort persónan hennar Fox fái reisupassann en hann er að íhuga það," sagði heimildarmaðurinn.

Megan Fox talar iðulega um Michael Bay í viðtölum og hefur meðal annars líkt honum við Adolf Hitler. Þessi heimskulegu ummæli Fox eru talin ástæðan fyrir því að leikstjórinn ætli nú að losa sig við hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.