Handbolti

Umfjöllun: Valsstúlkur enn á sigurbraut

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Mynd/Arnþór

Valur tók á móti Fylki að Hlíðarenda í N1-deild kvenna í dag. Heimastúlkur sigruðu gestina örugglega, 28-19.

Fyrir leikinn höfðu Valsstúlkur unnið alla sína leiki og með fullt hús stiga. Það varð engin breyting þar á í dag og allt eftir bókinni. Fylkir þurfti á sigri að halda til að komast nær toppliðunum en eins og við mátti búast reyndist Valur allt of stór biti fyrir gestina.

Fylkisstúlkur mættu grimmar til leiks og leiddu leikinn fyrstu tuttugu minúturnar. Flottur sóknarleikur og sterk vörn komu heimastúlkum í opna skjöldu. Valur var að gera klaufamistök, lélegar sendingar og sóknarleikurinn ósannfærandi á tímabili. En eftir að Valur jafnaði leikinn þá voru þær loks komnar í gang og leiddu í hálfleik, 13-10.

Heimastúlkur héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og var aldrei hætta á öðru en þær færu með öll stigin úr þessum leik. Liðið kom mun ákveðnara og baráttuglaðara út eftir leikhlé. Vörnin var mjög góð og skoruðu gestirnir ekki nema þrjú mörk fyrstu þrettán mínúturnar í síðari hálfleik.

Gestirnir byrjuðu leikinn frábærlega en eftir að þær gáfu forystuna þá var ekki aftur snúið fyrir þær. Guðrún Ósk Maríasdóttir, markvörður gestanna hélt þeim þó inn í leiknum með góðum markvörslum. Það virtist sem þær höfðu ekki nógu mikla trú á verkefninu og heimastúlkur rúlluðu yfir þær í lokin. Lokatölur sem fyrr segir, 28-19.

Valur - Fylkir 28 - 19 (13-10)

Mörk Vals (skot):
Rebekka Rut Skúladóttir 4(6), Kristín Guðmundsdóttir 4(8), Hrafnhildur Skúladóttir 3(9), Hildigunnur Einarsdóttir 3(6), Íris Ásta Pétursdóttir 3(5), Ágústa Edda Björnsdóttir 1(3), Anna Guðmundsdóttir 1(1).

Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir: 11/2, Sunneva Einarsdóttir 2.

Hraðaupphlaup: Íris Ásta 2, Hildigunnur, Hrafnhildur, Katrín Andrésdóttir, Elsa Rut.

Fiskuð víti: Anna Ursúla 2, Katrín Andrésar, Rebekka Rut, Hildigunnur, Hranfhildur, Elsa Rut.

Utan vallar: 8. mín.

Mörk Fylkis (skot): Sunna Jónsdóttir 7(17), Sunnar María Einarsdóttir 3(8), Sigríður Hauksdóttir 3(4), Ela Kowal 3(4), Hildur Harðardóttir 2( 5), Elín Helga Jónsdóttir 1(3).

Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir: 15.

Hraðaupphlaup: Sigríður Hauksdóttir.

Fiskuð víti: Ela Kowal, Sigríður Hauksdóttir, Elín Helga Jóndsóttir, Sunnar María Einarsdóttir.

Utan vallar: 6 mín

Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson, áttu fínan dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×