Lífið

Fyrirgefur morðingja móður sinnar

Jennifer Hudson finnur styrk í guði.
Jennifer Hudson finnur styrk í guði.

Söngkonan Jennifer Hudson segist fyrirgefa William Balfour sem myrti móður hennar, bróðir og frænda. Morðin voru framin á heimili móður hennar í október á síðasta ári.

Spurð hvernig Jennifer fari að því að fyrirgefa slík voðaverk segist hún vera mjög trúuð. Það sé guð sem hjálpi henni að finna fyrirgefninguna og þar með innri ró.

William Balfour skaut fjölskyldu Jennifer með köldu blóði en hann var giftur systur Jennifer. Réttarhöldin hófust fyrir stuttu, William neitaði sök við þingfestingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.