Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands-KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennnings Henningssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna.
Henning mun taka við liðinu af Ágústi Björgvinssyni sem hefur þjálfað A-landsliðs kvenna síðasta eina og hálfa árið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Henning kemur að A-landsliði kvenna því hann var aðstoðarþjálfari Ívars Ásgrímssonar á sínum tíma.
Henning hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari. Henning hefur þjálfað í efstu deildum karla og kvenna og einnig var Henning þjálfari unglingalandsliðs kvenna fyrir nokkrum árum.
Henning Henningsson var aðstoðarþjálfari Íslands- og deildarmeistara Hauka í Iceland Express deild kvenna í vetur.
Næsta verkefni kvennalandsliðsins verða Smáþjóðaleikarnir á Kýpur sem fara fram í byrjun júní n.k. og mun liðið hefja æfingar fljótlega. Í ágúst mun liðið leika seinni umferðina í Evrópukeppninni.
Ráðning Hennings er fram yfir Evrópukeppnina í haust.