Sport

FH-ingar fá hörkukeppni frá ÍR-ingum og fjórhöfða að norðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það verður hart tekist á í Laugardalnum um helgina.
Það verður hart tekist á í Laugardalnum um helgina. Mynd/Anton

44. Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands fer fram á Laugardalsvellinum um helgina og það er búist við spennandi keppni um bikarmeistaratitilinn en FH-ingar hafa unnið bikarinn fimmtán ár í röð eða allar götur síðan 1994.

Sex lið eru skráð til keppni í 1. deild og mun spennan vera mikil milli efstu liða. Í fyrra sigraði FH í öllum flokkum, en ÍR sem er mótshaldari í ár kemur öflugt til leiks og ætlar sér örugglega að enda fimmtán ára sigurgöngu FH og vinna sinn fyrsta bikar í 20 ár.

Það verður einnig mjög spennandi að fylgast með nýju sameinuðu liði Norðurlands, en þar leiða hesta sína saman UMSS, UMSE, UFA og HSÞ.

Auk FH, ÍR og Norðurlands munu Breiðablik, HSK og sameiginlegt lið Ármanns og Fjölnis keppa í 1. deild bikarkeppninnar að þessu sinni.

Flestir bikarmeistaratitlar frá upphafi:

FH 18 (síðast 2009)

ÍR 17 (1989)

KR 5 (1970)

HSK 2 (1993)

UMSK 1 (1971)

Flestir sigrar í karlaflokki

FH 19

ÍR 14

KR 1

Breiðablik 1

Flestir sigrar í kvennaflokki

ÍR 12

FH 11

Ármann 7

HSK 6










Fleiri fréttir

Sjá meira


×