Formúla 1

Fimmta nýja liðið vill í Formúlu 1

Alexander Wurz vill stýra Formúlu 1 liði á næsta ári sem kallast Superfund.
Alexander Wurz vill stýra Formúlu 1 liði á næsta ári sem kallast Superfund. mynd: Getty Images

Alexander Wurz, fyrrum Formúlu 1 ökumaður hefur sótt um þátttökurétt fyrir Superfund keppnislið svokallað sem hann vill veita forstöðu ef liðið fær aðgang að Formúlu 1 á næsta ári.

Samtals býtast því 15 lið um 26 sæti á ráslínu á næsta ári. FIA, alþjóðabílasambandið mun skera úr um hvaða lið hljóta keppnisrétt þann 14. júní. Fimm ný lið hafa sótt um, auk 10 liða sem keppa á þessu ári. Umsóknarfrestur rann út á föstudaginn og Superfund liðið kom fram í dagsljós nú eftir helgina eftir að allar umsóknir höfðu verið yfirfarnar.

Wurz vann aður sem ökumaður með Benetteon, McLaren, Williams og Honda og þykir einn allra snjallasti þróunarökumaðurinn sem starfað hefur síðasta áratug. Hann fékk ekki mikla keppnisreynslu, en innsæi hans við þróunarvinnu þótti hans aðall. Austurrískur viðskiptjöfur vill kosta lið Wurz, en lið á vegum Prodrive, Lola, Campos og USF1 hafa einnig sótt um aðild í samkeppni við Superfund. Hver lið fær tvö sæti á ráslínunni á næsta ári.

Gamalgróinn keppnislið hafa deilt við FIA um reglur, en liðin fimm sækja um á grundvelli þessa að þak verði á rekstrarkostnaði á næsta ári, eins og FIA hefur lagt til að verði rauninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×