Bíó og sjónvarp

Tvær með átján tilnefningar

THe Reader Myndin er gerð eftir sögu Bernhards Schlink, Lesaranum, sem hefur verið þýdd á íslensku.
THe Reader Myndin er gerð eftir sögu Bernhards Schlink, Lesaranum, sem hefur verið þýdd á íslensku.
The Curious Case of Benjamin Button og The Reader státa samanlagt af átján Óskarstilnefningum, þar á meðal sem besta kvikmyndin og besti leikstjórinn. Þær verða báðar frumsýndar á morgun auk gamanmyndarinnar Bride Wars.

The Curious Case of Benjamin Button fjallar um Benjamin Button (Brad Pitt) sem fæðist sem gamall maður og verður yngri eftir því sem árin líða. Hún fær 8,4 í einkunn á Imdb.com og 70% á Rottentomatoes.com og þykir leikstjóranum David Fincher (Seven, Fight Club, Zodiac) hafa tekist einstaklega vel upp í þetta sinn.

Stephen Daldry, leikstjóri Billy Elliot og The Hours, sendir frá sér The Reader. Hún segir frá lögfræðinema (Ralph Fiennes) sem rifjar upp ástarsamband sem hann átti sem ungur maður við eldri konu (Kate Winslet) þegar hún er leidd fyrir herrétt eftir seinni heimstyrjöldina. Einkunn: 7,9 á Imdb og 60% á Rottentomatoes.

Bride Wars fjallar um tvær æskuvinkonur (Kate Hudson og Anne Hathaway) sem eru að fara gifta sig og ætla að vera brúðarmeyjar hvor hjá annarri. Fyrir misskilning eru brúðkaupin bókuð á sama degi á sama stað og ekkert virðist fá dagsetningunni breytt. Myndin fær 4,8 á Imdb.com og 12% á Rottentomatoes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×