Lífið

Grey"s-stjarna í íslensku boði

Jónsi í Sigur Rós ásamt kærasta sínum Alex Somers og Sigurjóni Sighvatssyni.Mynd/Rich Schmitt
Jónsi í Sigur Rós ásamt kærasta sínum Alex Somers og Sigurjóni Sighvatssyni.Mynd/Rich Schmitt

Eric Dane, sem leikur Dr. Mark Sloan í læknaþáttunum Grey"s Anatomy, var á meðal 250 gesta í kynningarpartíi fyrir íslenska tónlist sem var haldið í Los Angeles um síðustu helgi. Um kokkteilboð var að ræða sem fór fram á heimili Lanette Phillips, eins virtasta framleiðanda tónlistarmyndbanda í heiminum, sem sótti tónlistarráðstefnuna You Are In Control í Reykjavík í fyrra.

„Þetta gekk alveg rosalega vel. Haukur Heiðar í Diktu og Lay Low spiluðu og fengu bæði mjög góð viðbrögð,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Útón. Verkefnið nefnist Made in Iceland og er ætlað að koma íslenskri tónlist að í bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. „Við fengum mjög mikið af góðu fólki, bæði plötuútgefendum og kvikmyndaframleiðendum,“ segir Anna Hildur og telur að góð tengsl hafi myndast í partíinu.

Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson ætlaði upphaflega að halda partíið en eftir að hann seldi húsið sitt með stuttum fyrirvara bauðst Lanette til að hlaupa í skarðið. Sigurjón mætti engu síður í boðið og með honum í för var Eric Dane. Aðrir mektarmenn sem létu sjá sig voru leikstjórinn Eagle Egilsson og tónlistarmennirnir Atli Örvarsson og Veigar Margeirsson sem eru allir búsettir í Los Angeles. Þá var Jónsi úr Sigur Rós í gestgjafahlutverki og vakti að vonum mikla athygli.

Baddi, söngvari Jeff Who?, var einnig á meðal gesta. „Þetta var alveg æðislegt. Þetta er eitt af skemmtilegri partíum sem ég hef farið í,“ segir hann. „Maður vissi ekki hvort þetta yrði eitthvað stíft en þetta var mjög afslappað. Þetta var flott partí fyrir íslenska tónlist og ekkert einhver tímaeyðsla. Það var gaman að kynnast fólkinu upp á framtíðina að gera.“

- fb

eric dane Eric Dane úr læknaþáttunum Grey´s Anatomy var á meðal gesta. nordicphotos/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.