Formúla 1

Ný mótaröð laðar að ný lið

Lewis Hamilton og Jenson Button eru dalæti Breta og takast á um helgina í lokamótinu á Silverstone.
Lewis Hamilton og Jenson Button eru dalæti Breta og takast á um helgina í lokamótinu á Silverstone. Mynd: AFP

Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að mótaröð FOTA sem Formúlu 1 lið ákváðu að stofna í fyrrakvöld geti laðað að sér ný lið sem ætluðu að keppa undir merkjum FIA í Formúlu 1.

"Ég tel að átta lið muni nægja til að setja upp öfluga mótaröð, en nokkrir aðilar hafa sýnt því áhuga á slást í hópinn og lið sem sóttu um að komast í Formúlu 1 á dögunum en fengu ekki náð fyrir augum FIA", sagði Whitmarsh.

Tvö lið sem sóttu um drógu umsóknir sínar til FIA tilbaka eftir að ljóst var að bílaframleiðendur vildu stofna eigin mótaröð. En 15 ný lið sýndu því áhuga á að komast í Formúlu 1 í síðustu viku.

"Það vilja allir keppa við stóru liðin, McLaren, Ferrari og Brawn. Stjórnendur Formúlu 1 hafa ekki sinnt áhorfendum nægilega vel og það er hægt að gera mun betur. Vissulega er staðan sorgleg í dag, en menn verða að vera bjartsýnir á framtíðna. Það að ný lið sýna nýrri mótaröð áhuga er bara innblástur fyrir okkur að gera góða hluti", sagði Whitmarsh.

Sjá brautarlýsingu á Silverstone




Fleiri fréttir

Sjá meira


×