Lífið

Lúinn eftir erfiðar æfingar

erfiðar æfingar Rúnar Freyr og Gísli Örn Garðarsson í ógurlegri teygjuæfingu fyrir Faust. Björn Hlynur Haraldsson fylgist spenntur með.fréttablaðið/stefán
erfiðar æfingar Rúnar Freyr og Gísli Örn Garðarsson í ógurlegri teygjuæfingu fyrir Faust. Björn Hlynur Haraldsson fylgist spenntur með.fréttablaðið/stefán

„Hópurinn er hægt og rólega að komast í form,“ segir Rúnar Freyr Gíslason sem leikur í Faust sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 15. janúar. Leikritið krefst mikils líkamlegs styrks og hafa Rúnar Freyr og samleikarar hans æft stíft undanfarinn einn og hálfan mánuð undir styrkri stjórn leikstjórans Gísla Arnar Garðarssonar og þrekþjálfarans Jóhannesar Níels Sigurðssonar.

„Þetta er ansi hressandi eftir dálítið mörg blaserjakkahlutverk sem ég hef verið í, að fá allt í einu að hreyfa sig almennilega,“ segir Rúnar Freyr. „Að fá að klifra svolítið, róla sér og hoppa á trampólíni er bara æðislegt. Við byrjum alltaf í fótbolta á morgnana og tökum svo þrek og púl. Þetta er trúlega gott fyrir líkamann og ekki síst sálina. Maður er alltaf einhvern veginn hress og kátur.“

Rúnar viðurkennir samt að verkefnið sé mjög strembið og að hver dagur sé mikil þrekraun. „Ég er að sýna í Söngvaseiði og Fjölskyldunni í Borgarleikhúsinu fjórar til sex sýningar á kvöldin. Svo eru æfingar á Faust alla daga þannig að maður er orðinn ansi lúinn. En þetta er samt svo gaman að ég kvarta ekki.“

Nýlega birtist viðtal í Fréttablaðinu við konu hans Selmu Björnsdóttur sem er önnum kafin við undirbúning á söngleiknum Oliver! sem verður frumsýndur á annan í jólum. Þar var leitt að því líkum að Rúnar Freyr myndi sjá um jólahaldið vegna anna Selmu. „Ég kasta því bara til baka. Selma sér um það,“ segir Rúnar og hlær. Hann er að vonum spenntur fyrir frumsýningardegi Faust. „Maður verður bara að fara rólega í jólasteikina sem Selma ætlar að elda, þannig að maður sé ekki of þungur á sér 15. janúar.“

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.