Formúla 1

Alonso: Button enn líklegasti meistarinn

Jenson Button fór míkinn í fyrstu mótum ársins, en hefur ekkið unnið tvö mót í röð og var aðeins með tíunda besta tíma í morgun.
Jenson Button fór míkinn í fyrstu mótum ársins, en hefur ekkið unnið tvö mót í röð og var aðeins með tíunda besta tíma í morgun.

Fernando Alonso telur að Jenson Button sé enn líklegasti Formúlu 1 meistarinn í ár, þó Red Bull liðið hafi unnið tvö síðustu mót. Button er með 20 stiga forskot á Sebastian Vettel og Mark Webber sem voru í fyrsta og öðru sæti í síðustu mótum.

"Ég myndi veðja á Button, en næstu 3-4 mót munu ráða miklu um úrslitin í meistaramótinu. Þá sjáum við hvort Brawn hefur burði til að vinna fleiri mót", sagði Alonso í dag.

Button var aðeins með tíunda besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Búdapest í dag.

"Ég held að Red Bull bíllinn verði sá sneggsti í Búdapest, en Brawn geti samt barist um sigur. McLaren gæti orðið sterkt og Toyota. Þá er Williams í góðum gír á brautinni. Þetta verður spennandi mótshelgi", sagði Alonso.

Sjá brautarlýsingu frá Ungverjalandi








Fleiri fréttir

Sjá meira


×