Viðskipti innlent

Fulltrúi Al-Thani: Undrast að kvittun finnist ekki

Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani.
Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani.

Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í fjárfestingarfélaginu Q Iceland Finance, undrast frétt Ríkissjónvarpsins í kvöld þar sem fullyrt var að yfirvöld hér á landi skoði nú hvort tugmilljarða kaup fjárfesta frá Katar á hlutabréfum í Kaupþingi síðasta haust hafi verið blekking. ,,Ég skil ekki að þeir finni ekki umræddar kvittanir." Ekki var haft samband við Telmu vegna fréttar RÚV.

Í lok september var tilkynnt að Sheik Mohamed bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins í Katar, hefði keypt 5% hlut í Kaupþingi á 25,5 milljarða í gegnum eitt af fjárfestingarfélögum sínum, Q Iceland Finance.

Í frétt RÚV var sagt að milljarðarnir sem Al-Thani átti að greiða fyrir hlutinn í Kaupþingi finnist hvergi. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV er málið til skoðunar hjá yfirvöldum. ,,Embættismenn spyrja sig að því hvort kaupin hafi verið risavaxið svindl þar sem raunverulegir peningar hafi aldrei skipt um hendur," sagði í fréttinni.

,,Þetta er ekki rétt og ég á ekki til orð yfir þessari frétt," sagði Telma í samtali við fréttastofu.

Telma segist þurfa að ræða málið við umbjóðendur sína þar sem um alvarlegan hlut sé að ræða áður en hún tjái frekar. Hún telur líklegt að send verði út tilkynning vegna málsins morgun.

Frétt RÚV stangast á við frétt sem birtist á Vísi 11. desember. Þar sagði Telma að Al-Thani lítur á 25,5 milljarða króna fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé. Jafnframt að hann hafi greitt fyrir eignarhlut sinn í Kaupþingi með reiðufé og mjög tryggum veðum í eignum sínum erlendis.








Tengdar fréttir

Al-Thani lítur á fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé

Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani lítur á 25,5 milljarða kr. fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé. Að sögn Telmu Halldórsdóttur talsmanns Q Iceland Finance mun Al-Thani hafa greitt fyrir 5% eignarhlut sinn í Kaupþingi með reiðufé og mjög tryggum veðum í eignum sínum erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×