Bakþankar

Hámarkslaunin

Alþingi skorar á ríkisstjórnina að láta undirbúa löggjöf um hámarkslaun, þar sem kveðið verði á um að ekki megi greiða hærri laun hér á landi en sem svarar tvöföldum vinnulaunum verkamanns miðað við 40 stunda vinnuviku."

Svo hljóðaði þingsályktunartillaga sem kom fram á Alþingi árið 1979. Fyrir þrjátíu árum ræddu menn það í alvöru að setja lög á Íslandi sem bönnuðu meiri launamun en tvöfaldan. Flutningsmenn voru ekki af verri endanum; Stefán Jónsson alþingismaður og útvarpsmaður, Helgi Seljan, Jónas Árnason, Kjartan Ólafsson og Ólafur Ragnar Grímsson.

Þrátt fyrir að sá síðastnefndi hafi síðar snúið til starfa þar sem hann þáði - og þiggur enn - vel tvöföld verkamannalaun, er þessi tillaga um margt merkileg. Kannski þarf engan að undra að hún kom frá vinstri væng stjórnmálanna; allt voru þetta þingmenn Alþýðubandalagsins. Og auðvitað var hún felld. Við lestur Alþingistíðinda kemur hins vegar í ljós að aðrir þingmenn litu ekki á þetta sem dellu í veruleikafirrtum vinstrimönnum. Þvert á móti ræddu margir þetta málefnalega; þetta væri erfitt í framkvæmd, hvernig ætluðu menn að skipa einkafyrirtækjum fyrir og svo framvegis.

Þrjátíu ár eru liðin og aftur liggur fyrir þingi tillaga um að handstýra launum. Nú eru það ríkis­starfsmenn sem mega ekki vera hærra launaðir en forsætisráðherra. Í millitíðinni margfaldaðist launamunur hér á landi, það varð lenska að meta fólk eftir mánaðarlaunum og finna þurfti upp nýtt orð fyrir hæstu launin; ofurlaun hétu þau.

Ábyrgðin var það sem ætíð var vísað til, launin urðu að stigmagnast með einhverri óskilgreindri ábyrgð upp í hæstu hæðir. Eitthvað minna hefur þó farið fyrir þessari ábyrgð að undanförnu. En athyglisvert er að Stebbi á löppinni og meðflutningsmenn hans vísuðu einnig til ábyrgðar í sinni tillögu. Þeir vildu hafa kerfið líkt hlutakerfi á sjónum, þar sem skip­stjórinn ber mestu ábyrgðina og hlýtur því hæst launin. Tvöfalt hærri laun en sá lægst launaði; hásetinn.

vel má vera að lög um hámarkslaunamun séu dæmi um forræðishyggju. Af einhverjum ástæðum hugnast manni þau þó betur en sá hundrað- eða þúsundfaldi launamunur sem kynti undir geðveikinni hér fyrir skemmstu.








×