Hlutur Exista og Chris Ronnie í JJB Sports til Kaupþings 14. janúar 2009 09:06
Hlutur Exista og Chris Ronnie í sportvörukeðjunni JJB Sports er kominn í eigu Kaupþings í því sem Financial Times kallar dularfull viðskipti. Í breska blaðinu Times er hinsvegar sagt að um einfalt veðkall hafi verið að ræða. Hluturinn upp á 27,5% var geymdur í Guro Lesure, félagi sem Ronnie og Exista áttu í sameiningu. Í tilkynningu frá JJB Sports kemur fram að Ronnie viti ekki hvenær eða á hvaða verði hluturinn komst í hendur þrotabús Kaupþings. Þessi tilkynning kom í kjölfar rannsóknar sem Sir David Jones hóf fyrir tveimur vikum eftir að hann var kjörinn stjórnarformaður JJB. Rannsóknin beindist að eignarhaldinu á JJB Sports. Það hefur alltaf verið óljóst hvaðan Ronnie fékk fjármagn til að kaupa hlutinn ásamt Existu árið 2007 en þá kostaði hann 190 milljón pund. Samkvæmt fréttunum í morgun kom fjármögnunin frá útibúi Singer & Friedlander á eyjunni Mön. Jólasala JJB var slæm eða 6.8% minni en árið áður og reiknar keðjan með að hafa tapað um 10 milljónum punda, eða tæpum 2 milljörðum kr. á síðasta ári. Við tíðindin féllu hlutbréf JJB um rúm 16%. Það hefur áður komið fram í fréttum hér að á síðasta ári taldi Exista að hlutur sinn í JJB væri verðlaus.
Mest lesið Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Viðskipti innlent Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Viðskipti innlent Í samkeppni við Noona með Sinna Neytendur Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Viðskipti innlent Verð í Bónus hækkað meira en í Krónunni Neytendur Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ Atvinnulíf „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ Atvinnulíf Indó ríður á vaðið Neytendur Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Viðskipti erlent Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira