Lífið

Stefán Karl kom Slash í jólaskapið

Tveir góðir Fyrrverandi gítarleikari rokksveitarinnar Guns n‘ Roses,<B> Slash, mætti á söngleikinn um Trölla sem </B>Stefán Karl leikur og hrósaði íslenska leikaranum í hástert baksviðs fyrir frammistöðuna.
Tveir góðir Fyrrverandi gítarleikari rokksveitarinnar Guns n‘ Roses,<B> Slash, mætti á söngleikinn um Trölla sem </B>Stefán Karl leikur og hrósaði íslenska leikaranum í hástert baksviðs fyrir frammistöðuna.

„Hann kom á fimmtudagskvöldið, allur gataður í klessu með hatt á hausnum, klæddur í leðurjakka og þröngar gallabuxur með kurteisa krakka með sér og ljóshærða frú. Þau voru mjög falleg fjölskylda og ég held hreinlega að ég hafi komið Slash í jólaskapið," segir Stefán Karl Stefánsson.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá leikur Stefán Karl sjálfan Trölla í söngleik sem nú er sýndur fyrir fullu húsi í Panteges-leikhúsinu í Hollywood.

Í vikunni var síðan sagt frá því að stórstjörnur borgarinnar legðu nú leið sína í leikhúsið í aðdraganda jólanna til að berja Stefán og félaga augum. Meðal þeirra sem hafa sest niður og átt notalega stund með börnunum sínum eru þau Gwen Stefani og Gavin Rossdale og svo Ben Stiller, gamanleikarinn góðkunni. Nafnið Slash kveikir kannski líka á einhverjum jólaljósum enda var hann gítarleikari í einhverri alræmdustu rokksveit heims, Guns n' Roses.

Stefán viðurkennir að hann hlusti nú um stundir ekki mikið á þessa graðhestatónlist sem rokksveit Slash stóð fyrir en hann hafi alveg dillað hausnum við Paradise City og Welcome to the Jungle á sínum tíma. Svo hrifinn var reyndar Slash af frammistöðu Stefáns að hann tróð sér baksviðs eins og alvöru rokkgrúppía og heimtaði að ná tali af Trölla.

„Ég vildi nú ekki láta taka neina mynd af mér því ég var bara á náttsloppnum. En hann var mjög hrifinn og sagði að þetta hlyti að vera eins og að halda rokk-kon­sert."- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.