Íslenski boltinn

Mateja jafnaði nánast með síðustu spyrnu leiksins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mateja Zver skoraði mikilvægt mark í kvöld.
Mateja Zver skoraði mikilvægt mark í kvöld. Mynd/Auðunn

Mateja Zver tryggði Þór/KA jafntefli með marki á fjórðu mínútu í uppbótartíma þegar Þór/KA og Fylkir gerðu 3-3 jafntefli í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Fylkir komst í 2-0 með mörkum Önnu Bjargar Björnsdóttur og Fjollu Shala en Arna Sif Ásgrímsdóttir og Bojana Besic náðu að jafna metin fyrir heimastúlkur.

Lidija Stojkanovic kom Fylki aftur yfir skömmu fyrir leikslok en Mateja Zver skoraði jöfnunarmarkið nokkrum sekúndum áður en dómari leiksins flautaði til leiksloka.

Þór/KA var búið að vinna sex leiki í röð í Pepsi-deildinni og hafði ekki fengið á sig mark í deildinni í mánuð.

Þetta var fjórða markajafntefli Fylkisliðsins í deilinni í sumar eða þar sem liðin skorað tvö eða fleiri. Fylkisliðið hefur alls gert fimm jafntefli í deildinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×