Formúla 1

Ferrari hótar enn að hætta

FIA birti Ferrari sem keppanda á næsta ári, en stjórn Ferrari ætlar ekki að keppa ef reglur bretyast ekki fyrir 2010.
FIA birti Ferrari sem keppanda á næsta ári, en stjórn Ferrari ætlar ekki að keppa ef reglur bretyast ekki fyrir 2010. mynd: Getty Images

Samtök keppnisliða hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau vilji leysa hnútinn á milli sín og FIA, en einstrengingsleg vinnubrögð FIA verði ekki liðinn. FIA birti í morgun lista yfir leyfilega þátttakendur í Formúlu 1 á næsta ári og fimm núverandi lið eru á þeim lista með skilyrðum.

FOTA stendur við fyrri yfirlýsingar um samstöðu í dag og þau standa öll saman gegn nýjum reglum sem FIA vill nota á næsta ári. FOTA tekur ekki í mál að lið innan samtakanna séu dreginn í dilka og Ferrari segist ekki keppa á næsta ári ef nýjar reglur ganga eftir.

Ferrari, Red Bull og Torro Rosso voru öll samþykkt af FIA, en ekki að fullu lið BMW, Brawn, Renault, Toyota og McLaren.

Í yfirlýsingu FOTA segir að öll lið innan samtakanna séu á einu máli um að aðferðarfræði FIA sé að setja Formúlu 1 í krísu. Samtökin vilja leysa málin á næstu sjö dögum og beina tilmælum til íþróttanefdar FIA og æðsta ráði svokölluðu að koma að málinu.

FOTA er tilbúið að skrifa undir þriggja ára samning við FIA, ef skilyrðum liðanna um betri yfirstjórnun á mótshaldi og framkvæmd reglna er mætt. Íþróttin hafi þegar skaðast af völdum FIA og þessu þurfi að snúa á betri veg með framtíðina í huga.

Sjá nánar um málið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×