Formúla 1

Button: Einstakt að sigra í Mónakó

Albert prins í Mónakó afhendir Jenson Button sigurlaunin eftir öruggan sigur í dag.
Albert prins í Mónakó afhendir Jenson Button sigurlaunin eftir öruggan sigur í dag. Mynd: Getty Images

Bretinn Jenson Button vann sinn fimmta sigur i sex mótum í Mónakó í dag og segir að hann hafi verið sá sætasti frá upphafi.

"Fyrir helgina sagði ég að að vinna Mónakó kappaksturinn væri ekkert merkilegri en aðrir. Það var kannski meria til að létta af mér álaginu, en sannleikurinn sá að vinna þetta mót er einstök upplifun. Það að ná fyrsta og öðru sæti skiptir okkur Brawn menn enn meira máli. Þetta er líka mikilvægur sigur í stigamótinu og við erum vel settir fyrir komandi mót", sagði Button eftir keppnina.

Það var kostulegt að sjá Button hlaupa brautina eftir keppnina, því hann lagði bílnum á röngum stað eftir að hafa komið fyrstur í mark. Hann þurfti því að skokka dágóðan spöl á verðlaunapallinn hjá Alberti prins. Button er nú með 16 stiga forskot á félaga sinn Rubens Barrichello í stigakeppni ökumanna.

Stigastaðan í Formúlu 1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×