Brown uppseldur um helgina 18. september 2009 04:00 Nýjasta bók Dans Brown, The Lost Symbol, hefur selst í hundruðum eintaka hér á landi á skömmum tíma.
Búist er við því að nýjasta bók Dans Brown, The Lost Symbol, seljist upp hér á landi um helgina. Í gær voru rúmlega eitt hundrað bækur eftir á lager af þeim fimm hundruð sem pantaðar voru. Næsta upplag er ekki væntanlegt í búðir fyrr en í þarnæstu viku. „Bókin hefur rokselst síðan hún kom,“ segir Jónfinn Joensen, vörustjóri erlendra bóka hjá Eymundsson. „Hún er uppseld í mörgum búðum en er til í stærstu búðunum enn þá. Við erum að reikna með því að bækurnar klárist um helgina. Þetta er mjög svipað og við bjuggumst við.“ Bókin seldist í einni milljón eintaka á fyrsta útgáfudeginum í Bretlandi og Bandaríkjunum samanlagt, sem mun vera nýtt met. Því kemur árangurinn hér á landi ekki á óvart. Bókin er væntanleg í íslenskri þýðingu í byrjun nóvember og verður fyrsta upplagið prentað í 5.000 eintökum. Metsölubók Dans Brown, Da Vinci-lykillinn, hefur selst í 25 þúsund eintökum hér á landi og því líklegt að fyrsta upplagið af The Lost Symbol, eða Týnda tákninu, seljist fljótt upp. Nú styttist einnig í að þriðja bókin í Millennium-þríleik Stiegs Larsson, Loftkastalinn sem hrundi, komi út á ensku hér á landi, eða 1. október. Önnur bókin í seríunni kemur einmitt út í dag á íslensku. „Hún var að koma úr prentsmiðjunni,“ segir Jónfinn um þriðju bókina. „Það er búin að vera gríðarlega mikil eftirspurn eftir þessari bók.“
Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Fleiri fréttir Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni „Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“ Eitt fallegasta hús landsins sem Duna Laxness ólst upp í Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Barst með snjóflóði út í sjó og fékk hjartaáfall á tíu metra dýpi Hefðum við átt að sjá framboð Höllu Hrundar fyrir strax í febrúar? Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði Fjölgar listaverkum eftir konur á Bessastöðum Helgi og Rakel með listgallerí í miðri íbúð þeirra Sonur Gunnhildar og Erin kominn með nafn Prinsinn kom á undan Kónginum Tilkynningin sem kom af stað óvæntri atburðarás Kári og Eva eru hjón Hafdís ætlar ekki að svara spurningaflóðinu Einfaldar leiðir fyrir andlega vellíðan um hátíðirnar „Þetta byrjaði allt þegar ég var á lausu“ Orði gagnrýni eins og þeir vilji að makinn orði hana Innlit í nýju Airbus vélina sem er nýlent á landinu Dótturdóttir Bjarna Ben komin með nafn Sjá meira