Madoff eyðir útivistinni í félagskap mafíuforingja 16. nóvember 2009 11:20
Stórsvindlarinn Bernhard Madoff afplánar lífstíðardóm sinn í breiðum hópi glæpamanna en útivistinni innan múranna eyðir hann í félagsskap mafíuforingjans Carmine John Persisco Jr. sem er núverandi höfuð Colombio-fjölskyldunnar þrátt fyrir að sitja á bakvið lás og slá.Eins og áður hefur komið fram í fréttum deilir Madoff fangaklefa með eiturlyfjasmyglara í Butner fangelsinu í Norður Karólínu. Auk annarra situr í Butner flotanjósnarinn Johanthan Pollard sem mun eyða það sem eftir er ævinnar í fangelsi líkt á Madoff. Pollard fékk lífstíðardóm 1987 fyrir að selja Ísraelsmönnum trúnaðarupplýsingar.Í frásögn á epn.dk um veru Madoff í Butner segir að mafíuforinginn Carmine sé garðyrkjumaður fangelsisins og beri sem slíkur ábyrgð á garði þess. Madoff njóti þess að ganga um garðinn á hverjum degi og noti oftast tækifærið til að spjalla við Carmine.Hinn rúmlega sjötugi Madoff var dæmdur í 150 ára fangelsisvist fyrir pýramídasvindl sitt en talið er að hann hafi svikið um 1.000 milljarða kr. út úr ýmsum fjárfestum bæði þekktum og óþekktum.
Mest lesið Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Enginn byggi upp fyrirtæki til að standa í veg fyrir endurreisn þess Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Viðskipti erlent Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira