Formúla 1

Torro Rosso frumsýndi í Barcleona

Sebastian Bourdais og Sebastian Buemi á frumsýningu Torro Rosso í morgun.
Sebastian Bourdais og Sebastian Buemi á frumsýningu Torro Rosso í morgun. mynd: kappakstur.is

Torro Rosso liðið á Ítalíu frumsýndi 2009 keppnisbíl sinn á Spáni. Ökumenn liðsins verða Frakkinn Sebastoan Bourdais og nýliðinn Sebastian Buemi frá Frakkland.

Torro Rosso liðið er ítalskt, en bíllinn er í raun hannaður af Red Bull í Englandi, hjá sömu aðilum og hanna Red Bull keppnisbílinn. Bílarnir eru því líkir, nema að Ferrari vél er í Torro Rosso bílnum, en Renault í Red Bull bílnum.

Eiginleikar bílanna eru því ekki eins og verður forvitinlegt að sjá hvort lið gerir betur. Torro Rosso vann sigur í fyrra, en Red Bull ekki. Sebastian Vettel sem var ökumaður Torro Rosso verður hjá Red Bull.

Hinn tvítugi Buemi tekur sæti Vettles og segist hvergi banginn. "Þó ég sé eini nýliðinn, þá verð ég bara að gera mitt besta. Einbeita mér 100% og standa unir væntingum liðsins. Ég vil náttúrlega gera betur en liðsfélagi minn", sagði Buemi.

Bourdais rétt náði að hanga á sæti í ár, eftir miklar vangaveltur liðsmanna sinna um hvort hann væri nógu góður. Hann hefur nú ár til að sanna sig, eftir misjafn gengi í fyrra.

sjá nánar um Torro Rosso






Fleiri fréttir

Sjá meira


×