Formúla 1

Ökumönnum Red Bull frjálst að kljást

Mark Webber á Red Bull vann síðasta mót, en Sebastian Vettel mótið þar á undan.
Mark Webber á Red Bull vann síðasta mót, en Sebastian Vettel mótið þar á undan.

Þó mikið sé undir hjá Red Bull keppnisliðinu sem hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót, þá segir Christian Horner að Mark Webber og Sebastian Vettel sem frjálst að keppa af fullri hörku við hvorn annan. Liðið á góða möguleika á titlum í ár, eftir gott gengi.

"Við styðjum jafnt við bakið á báðum ökumönnum. Það er bara 1,5 stig á milli þeirra og þeir eiga því báðir möguleika á titlinum. Það er langur vegur í að ná í Jenson Button, en ef sú staða kemur upp að aðeins annar ökumanna okkar á möguleika á að skáka honum, þá munu þeir spila með hvor öðrum. Við ætlum okkur það að þeir nái báðum Brawn bílum í mótum, sama hvort það er Button eða Barrichello", sagði Horner.

Red Bull vann á Silverstone og Nurburgring og virðist standa framarn en Brawn þessa dagana, eftir að hafa breytt útfærslu bílsins milli móta.

"Ökumenn okkar eru á misjöfnum stað í tilverunni, annar eldri en hinn, en þeir hafa unnið mjög vel saman og náð fyrsta og öðru sæti. Skiptst á að sigra. Það eru engin veikleikamerki hjá okkur , en við gætum þess samt að framþróa bílinn og undirbúa okkur af kostgæfni", sagði Horner.

Næsta mót er í á Hungaroring í Ungverjalandi um aðra helgi, en sú braut er mjög krókótt og í hægara lagi. Brawn menn telja að bíll sinn virki betur þar en bíll Red Bull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×