Matur

Kartöflumús og meðlæti

Kartöflumús:

c.a 5 stórar Bökunarkartöflur 

3 dl Rjómi 

c.a 1 msk Trufluolía 

2-3 msk smjör 

Ítölsk steinselja

Kartöflurnar eru bakaðar í ofni ofaná grófu salti í c.a 45 mín við 200° . kartöflurnar eru setta í gegnum sigti, rjóminn er soðin í c.a 3 mín og blandað saman við kartöflurnar og hrært vel saman, þá er smjörinu blandað saman við ásamt kryddi. Í þetta sinn erum við með trufluolíu, steinselju, salt og pipar. Hrærið vel í músinni þar til hún glansar fallega og smakkið vel til.

Sósa:

kjötafskurður

c.a3 stk Shallotulaukur

1-2 stk gulrætur

1 stöngull sellerí

5 dl nautakraftur

1-2 dl Portvín eða Madeira

trompsveppir

Salt og pipar

1-2 msk smjör

Kjötið er brúnað vel af, þá er grænmetið sett saman við og brúnað vel, þá er vínið sett saman við og látið sjóða alveg niður, til að fá meiri kraft setjum við smá vín aftur og látum sjóða alveg niður. Þá er nautasoðinu blandað saman við og suðan látinn koma upp. Þá er sósan sigtuð og smökkuð til með salt og pipar. Sveppirnir eru steiktir á sér pönnu og settir svo saman við sósuna. Í restina er smjöri blandað saman við til að fá fallegan glans á sósuna áður en hún er borin fram.

Meðlæti:

Villisveppablanda t.d ostrusveppir og fl. 

Perlulaukur c.a 4-5 stk á mann. 

Laukurinn er létt brúnaður á pönnu og sveppirnir settir saman við og létt steiktir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.