Leikjavísir

Ný tegund af PlayStation 3

ps3
Ný tegund af PlayStation 3-tölvunni kemur í búðir hérlendis 1. september.
ps3 Ný tegund af PlayStation 3-tölvunni kemur í búðir hérlendis 1. september.

Ný tegund af PlayStation 3-tölvunni kemur út 1. september. Harði diskurinn hefur verið stækkaður úr 80 GB yfir í 120 GB og öll innri hönnun vélarinnar hefur verið tekin í gegn, sem skilar sér í léttara og minna umfangi.

Miðað við fyrstu útgáfu PlayStation 3-tölvunnar er þessi um það bil 35 prósentum minni og léttari og þar að auki eyðir hún þrjátíu prósentum minna rafmagni. Síðan PS3-tölvan kom út í mars 2007 hafa verið framleiddir fyrir hana rúmlega eitt þúsund leikir og fer sú tala hækkandi með hverjum mánuðinum. Á meðal væntanlegra titla eru Gran Turismo 5, God of War 3 og EyePet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.