Lífið

Í vondum málum

Fjöldi kvenna hefur komið fram og viðurkennt að hafa átt í sambandi við hinn gifta Tiger Woods.
Fjöldi kvenna hefur komið fram og viðurkennt að hafa átt í sambandi við hinn gifta Tiger Woods.

Fréttir af slysi og meintu framhjáhaldi kylfingsins Tiger Woods hafa verið á allra vörum undanfarna daga. Tímaritið US Weekly heldur því fram að Elin Nordegren, eiginkona Tiger Woods til fimm ára, ætli sér að standa með manni sínum í gegnum þessa erfiðu tíma. Tímaritið vill þó meina að Nordegren geri það aðeins peninganna vegna því Woods hefur lofað að greiða henni ríkulega fyrir. Samkvæmt kaupmála sem hjónin gerðu með sér þarf Nordegren að vera gift Woods í tíu ár til þess að fá tuttugu milljónir Bandaríkjadala af auðæfum Woods.

Nú hefur þessi fjárhæð verið hækkuð til muna. Sænski kylfingurinn Jesper Parnevik, sem Elin Nordegren vann eitt sinn hjá, segist sjá eftir því að hafa kynnt stúlkuna fyrir Woods á sínum tíma. „Við héldum greinilega að hann væri betri maður en hann er. Ætli ég skuldi Elinu ekki afsökunarbeðni,“ var haft eftir Parnevik.

Rachel Uchitel, konan sem á að hafa hrundið þessu öllu af stað, er orðin stórstjarna í Bandaríkjunum og önnur konan, Jaimee Grubbs, sagði í nýlegu viðtali að það hafði sært hana mjög að komast að því að Woods ætti fleiri hjásvæfur en hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.