Handbolti

Stjarnan Íslandsmeistari þriðja árið í röð - vann Fram 28-26

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alina Petrache skoraði 7 af fyrstu 12 mörkum Stjörnunnar.
Alina Petrache skoraði 7 af fyrstu 12 mörkum Stjörnunnar. Mynd/Stefán

Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna með öruggum tvegjja marka sigri á Fram, 28-26, í þriðja leik liðanna í Mýrinni í dag. Stjarnan náði góðu forskoti í upphafi leiks og var sjö mörkum yfir í hálfleik.

Þetta er þriðja árið í röð þar sem Stjarnan verður Íslandsmeistari í handbolta kvenna en liðið hefur unnið titilinn síðustu tvö ár eftir deildarkeppni

Stjarnan hafði mikla yfirburði í úrslitaeinvíginu og vann alla þrjá leikina örugglega með sjö, átta og tveggja marka mun.

Framkonur náðu að minnka muninn í seinni hálfleik bornar uppi í sókninni af þeim Anett Köbli og Stellu Sigurðardóttur. Framliðið skoraði fjögur síðustu mörk leiksins og kom muninum niður í tvö mörk í lokin.

Stjarnan-Fram (17-10) 28-26

Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 10/3, Elísabet Gunnarsdóttir 5

Harpa Sif Eyjólfsdóttir 5, Kristín Jóhanna Clausen 4, Solveig Lára Kjærnested 3, Þorgerður Anna Atladóttir 1.

Mörk Fram: Anett Köbli 9/5, Stella Sigurðardóttir 9, Karen Knútsdóttir 4, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Hildur Knútsdóttir 1, Pavla Nevarilova 1, Þórey Rósa Stefánsdóttir 1.

Gangur leiksins:

1-0 Harpa Sif Eyjólfsdóttir, langskot

2-0 Solveig Lára Kjærnested, lína (Harpa Sif gaf línusendinguna)

3-0 Alina Petrache, langskot

3-1 Stella Sigurðardóttir, langskot

4-1 Alina Petrache, langskot

5-1 Harpa Sif Eyjólfsdóttir, langskot

5-2 Hildur Knútsdóttir, lína (Karen)

5-3 Ásta Birna Gunnarsdóttir, langskot

6-3 Elísabet Gunnarsdóttir, hraðaupphlaup

7-3 Alina Petrache, víti (Kristín fiskaði víti)

8-3 Alina Petrache, víti (Alina)

9-3 Alina Petrache, langskot

10-3 Kristín Jóhanna Clausen, lína (Harpa Sif)

10-4 Karen Knútsdótti, langskot

11-4 Alina Petrache, langskot

11-5 Anett Köbli, víti (Karen)

12-5 Alina Petrache, langskot

13-5 Kristín Jóhanna Clausen, vinstra horn

13-6 Anett Köbli, gegnumbrot

14-6 Harpa Sif Eyjólfsdóttir langskot

14-7 Anett Köbli, víti (Anett)

14-8 Anett Köbli, víti (Stella)


15-8 Elísabet Gunnarsdóttir, hraðaupphlaup

15-9 Stella Sigurðardóttir, gegnumbrot

16-9 Elísabet Gunnarsdóttir, lína

17-9 Solveig Lára Kjærnested, langskot

17-10 Anett Köbli, víti (Karen)

Seinni hálfleikur

17-11 Anett Köbli, víti (Pavla)

18-11 Alina Petrache, víti (Elísabet)

18-12 Anett Köbli, langskot

19-12 Alina Petrache, langskot

19-13 Anett Köbli, gegnumbrot

19-14 Anett Köbli, vinstra horn


20-14 Harpa Sif Eyjólfsdóttir, langskot

20-15 Stella Sigurðardóttir, langskot

21-15 Alina Petrache, langskot

22-15 Harpa Sif Eyjólfsdóttir, langskot

22-16 Stella Sigurðardóttir, gegnumbrot

23-16 Kristín Jóhanna Clausen, vinstra horn

23-17 Karen Knútsdóttir, hægra horn

23-18 Þórey Rósa Stefánsdóttir, hraðaupphlaup (horn)


24-18 Elísabet Gunnarsdóttir, vinstra horn

24-19 Stella Sigurðardóttir, langskot

24-20 Stella Sigurðardóttir, langskot


25-20 Solveig Lára Kjærnested, gegnumbrot

26-20 Elísabet Gunnarsdóttir, lína (Harpa Sif)

26-21 Stella Sigurðardóttir, langskot

27-21 Kristín Jóhanna Clausen, hraðaupphlaup

27-22 Stella Sigurðardóttir, langskot

28-22 Þorgerður Anna Atladóttir, langskot

28-23 Stella Sigurðardóttir, langskot

28-24 Pavla Nevarilova, lína (Stella)

28-25 Karen Knútsdóttir, hraðaupphlaup

28-26 Karen Knútsdóttir, hraðaupphlaup

- Fyrri hálfleikur -

Stjörnukonur hafa haft mikla yfirburði í í þriðja úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna í handbolta sem fram fer í Mýrinni í Garðabæ.

Stjarnan er 17-10 yfir í hálfleik eftir að hafa komist í 5-1, 10-3 og 13-5. Framstúlkur hafa farið illa með góð færi og Stjörnuliðið virðist ekki hafa mikið fyrir þessu.

Framliðið hefur ekkert ráðið við Alinu Petrache sem skoraði sjö af fyrstu tólf mörkum Stjörnunnar í leiknum.

Stjarnan vann fyrstu tvo leikina með sjö og átta marka mun. Það stefnir í ekkert annað en að Stjarnan vinni einvígið 3-0 og lyfti Íslandsbikarnum í kvöld.

Stjarnan-Fram (17-10) Hálfleikur

Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 7/2, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 3, Kristín Jóhanna Clausen 2, Solveig Lára Kjærnested 2.

Mörk Fram: Anett Köbli 5/4, Stella Sigurðardóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Hildur Knútsdóttir 1, Karen Knútsdóttir 1.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×