Formúla 1

Forskot Button og Brawn ekki óviðráðanlegt

Ökumenn Brawn liðsins hafa forystu í stigakeppni ökumanna og liðið í stigakeppni bílasmiða.
Ökumenn Brawn liðsins hafa forystu í stigakeppni ökumanna og liðið í stigakeppni bílasmiða.
Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull telur að stigaforskot ökumanna Brawn liðsins sé ekki óviðráðnlegt verkefni, en Formúla 1 er í Tyrklandi um næstu helgi. Felipe Massa hefur unnið mótið í Istanbúl þrjú ár í röð.

"Vissulega er Brawn liðið með afgerandi forskot í stigamóti ökumanna og bílasmiða. Button er aðeins fjórum stigum frá fullu húsi í mótum ársins, en tvö næstu mót munu marka framhaldið. Við mætum fullir eldmóðs til Tyrklands og stefnum á sigur í hverju móti fyrir sig. Svo sjáum við bara hvernig okkur miðað í stigamótinu", sagði Horner, en Formúlu 1lið eru mætt til Istanbúl.

Red Bull hefur unnið eitt mót á árinu, en Brawn menn fimm. Ross Brawn eigandi liðsins segir menn hafa fagnað sigrinum í Mónakó á dögunum, en hafi þó ekki gleymt sér.

"Keppinautar okkar verða öflugir í Tyrklandi, en við höfum þróað nýjan framvæng á bílinn. Þá er ný útgáfa af afturfjöðrun á bílunum til að takast á við óvenjuega brautina í Istanbúl. Í raun finnst mér ótrúlegt að þriðjungur mótaraðarinnar sé að baki, en vitanlega erum við hæstánægðir með stöðu okkar", sagði Brawn.

Jenson Button og Rubens Barrichello eru efstir í stigamóti ökumanna og Brawn liðið í stigamóti bílasmiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×