Körfubolti

Jolley leikur ekki með Njarðvík

Valur Ingimundarson fékk ekki framherjann sinn
Valur Ingimundarson fékk ekki framherjann sinn Mynd/Stefán

Ekkert varð af því að Njarðvíkingar fengju til sín framherjann Kevin Jolley eins og til stóð. Ekki tókst að fá Bandaríkjamanninn lausan frá samningi sínum í Portúgal og því er hann farinn heim á leið á ný.

Sigurður Ólafsson formaður kkd Njarðvíkur segir óvíst hvort félagið muni reyna að fá annan erlendan leikmann í stað Jolley - það verði skoðað í rólegheitunum ef eitthvað gott komi upp.

Þetta kom fram á fréttavefnum karfan.is í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×