Sigfús: Fá sér tyggjó og bíta á jaxlinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2009 13:45 Sigfús Sigurðsson, leikmaður Vals. Mynd/Arnþór
Sigfús Sigurðsson ætlar að bíða með að fara í aðgerð á hné þar til að úrslitakeppninni í N1-deild karla lýkur. Valur mætir í kvöld HK í oddaleik um hvort liðið kemst í úrslitarimmuna. Sigfús er búinn að vera að spila með Val þrátt fyrir að finna fyrir miklum sársauka í hnénu. „Hnéð á mér er þannig séð varla göngufært," sagði Sigfús. „Ég fór í aðgerð í nóvember og mér skilst að það sé einhver eftirmáli af þeirri aðgerð sem þurfi að laga nú." „Ég finn fyrir miklum sársauka og má varla koma við nokkra staði án þess að maður emji af sársauka. En það er ekkert annað að gera en að fá sér tyggjó og bíta á jaxlinn - fara svo glaður í aðgerð með gullið um hálsinn." Sigfús segir að leikurinn í kvöld leggist vel í sig. „Eins og alltaf þá leggst þetta verkefni vel í mig. Það verður svo bara að koma í ljós hvernig leikurinn mun þróast." „En HK er vissulega með hörkulið og þeir hafa verið óheppnir með meiðsli í vetur. Nú eru þeir búnir að fá alla sína menn til baka. Liðið hefur verið að spila bæði góða vörn og sókn og markvarslan hefur svo verið að lagast." „Þetta er dæmigerður „fifty-fifty"-leikur. Útkoman verður bara að koma í ljós."
Olís-deild karla Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn, íslenskur körfubolta og það besta frá Bandaríkjunum Sport Fleiri fréttir Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Sjá meira