Handbolti

Fram vann Reykjavík Open mótið í handbolta

Ómar Þorgeirsson skrifar
Framarar unnu Reykjavík Open.
Framarar unnu Reykjavík Open. Mynd/Stefán

Framarar fóru með sigur af hólmi á Reykjavík Open-mótinu í karlaflokki í handbolta sem fram fór um helgina.

Fram vann Aftureldingu 31-26 í úrslitaleik mótsins en staðan í hálfleik var 17-16 Fram í vil. Jafnræði var með liðunum lengi vel en Framarar fóru svo hægt og bítandi að síga fram úr.

Stjarnan endaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur gegn Neistanum frá Færeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×