Lífið

Fáir offitusjúklingar í Ameríku

Egill Einarsson. MYND/Gillz.is
Egill Einarsson. MYND/Gillz.is

Annað kvöld klukkan 20:10 verður frumsýndur nýr sjónvarpsþáttur, Ameríski draumurinn, á Stöð 2, þar sem Sveppi og Villi keppa við Audda og Gillz í æsilegum kappakstri þvert yfir Bandaríkin.

Við höfðum samband við Gillz sem heitir réttu nafni Egill Einarsson og spurðum hann út í þáttagerðina sem fram fór í Ameríku.

„Ferðin til USA var hrikalega skemmtileg og öðruvísi ferð en við félagarnir eigum að venjast. Vanalega þegar við förum erlendis þá er maður sitjandi á blackjack borði hálf rænulaus en þarna vorum við á fullu frá morgni til kvölds að safna stigum. Ég og Auddi vorum staðráðnir í að vinna þessar barnastjörnur," svaraði Egill.

„Það var eiginlega allt skemmtilegt í þessari ferð," bætti hann við og hélt áfram.

„Mér persónulega fannst mjög gaman að lyfta Asíubúum en það var eitt stig fyrir hvern Asíubúa sem þú lyftir. Ég hef gaman af Asíubúanum, þeir eru alltaf í góðu skapi og enginn hroki og leiðindi í þeim."

„Það kom mér á óvart að hafa ekki séð fleiri offitusjúklinga, ég bjóst við því að annarhver maður þarna úti væri offitusjúklingur. Það kom mér svo skemmtilega á óvart að Auddi sefur á lóknum og það var mjög kósý svona sérstaklega þar sem að við sváfum hlið við hlið alla ferðina. Hversu flókið er bara að ganga í nærbuxum!"

„Fólk þarf að horfa á þennan þátt því að það er hrikalega gaman að horfa á okkur fávitana gera vandræðalega hluti og verða okkur til skammar. Það sem verður líka gaman er að fólk á eftir að velja sitt lið og halda með þeim. Ég er að vona að „2Harðir" eignist stóran og harðan aðdáendahóp," sagði hann.

„Í þessari klippu erum við félagarnir að lyfta Asíubúa. Eins og ég sagði þá elska ég Asíubúann. Síðan eru fleiri sýnishorn úr þættinum á síðunni minni Gillz.is," sagði Egill áður en hann rauk á æfingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.