Sport

Stór dagur hjá íslensku keppendunum í Hollandi

Jón Margeir í lauginni.
Jón Margeir í lauginni.

Í morgun syntu í undanrásum á HM fatlaðra í sundi þau Eyþór Þrastarson í 100 m skriðsundi flokki S11 (flokki blindra), Sonja Sigurðardóttir i 50 m baksundi flokki S5 (flokki hreyfihamlaðra) og Jón Margeir Sverrison, Rangar Ingi Magnússon, Aníta Ósk Hrafnsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir í 100 m baksundi í flokki S14 (flokki þroskaheftra).

Sá fyrsti til að stinga sér til sunds í morgun var Eyþór Þrastarson sem hafnaði í 9. sæti á tímanum 1:06.85 mín, örfáum sekúndubrotum frá því að tryggja sér sæti í úrslitum en 8. besti tíminn var 1:06.39 mín – tæpara gat það vart verið.

Í 50 m baksundi hafnaði Sonja 12. sæti á tímanum 59.86 sek, nokkuð frá sínum besta tíma en Íslandsmet hennar er 54.12 sek.

Keppni í flokki þroskahamlaðra S14 hófst í morgun og þar hafnaði Jón Margeir í 14. sæti á tímanum 1:13.44 mín. og Ragnar Ingi í 18. sæti á tímanum 1:15.43 mín. Til þess að tryggja sér sæti í úrslitum hefðu þeir kappar þurft að synda kringum Íslandsmetið í þessari grein sem er 1:08.14 mín þar sem 8. besti tíminn í sundinu í morgun var 1:08.85 mín.

Þá hafnaði Kolbrún Alda í 14. sæti á tímanum 1:29.16 mín og Aníta Ósk í 17. sæti á tímanum 1:32.79 mín og bættu báðar sínn besta tíma. 

Á morgun keppa þau Eyþór Þrastarson í 50 m skriðsundi flokki S11 (flokki blindra) og Jón Margeir Sverrison, Rangar Ingi Magnússon, Aníta Ósk Hrafnsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir í 100 m bringusundi í flokki S14 (flokki þroskaheftra).

Jón Margeir keppir í úrslitum síðdegis í dag og nær vonandi að gera enn betur en í morgun og gera atlögu að fyrsta verðlaunapeningi Íslands á mótinu.

Samhliða heimsmeistaramótinu fara fram ýmsar kynningar, fundir og ráðstefnur tengdar framgangi íþrótta fatlaðra.  Þannig hafa verið haldnar ráðstefnur s.s. um þjálfun ungra og efnilegra sundmanna, ráðstefna um sund og fötlun, ráðstefna um blöndun fatlaðra íþróttamanna í önnur sérsambönd og svo mætti áfram telja. 

Þá hafa þjálfurum og forráðamönnum keppnisþjóðanna verið kynntar þær nýjungar og þeir möguleikar sem til staðar eru í þessari glæsilegu laug t.a.m. möguleika á greiningu á sundi hvers einstaklings.

Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála og afrekssviðs ÍF, hefur auk þess að fylgjast með gengi íslensku keppendanna setið hluta þeirra ráðstefna sem boðið hefur verið upp á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×