Lífið

Hjartað á Íslandi

Stina August ásamt hljómsveitinni Nista Stína syngur á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudagskvöld.
Stina August ásamt hljómsveitinni Nista Stína syngur á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudagskvöld.

Söngkonan Stína August, sem er búsett í Montreal í Kanada, heldur tónleika á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudaginn á staðnum Venue við Tryggvagötu.

Með Stínu spila valinkunnir einstaklingar, eða þeir Björn Thoroddsen, Sigurður Flosason, Einar Scheving og Tómas Einarsson.

Spiluð verða lög af væntanlegri sólóplötu hennar Concrete World en stefnt er að því að platan verði komin út fyrir tónleikana. Hún hefur verið í vinnslu sl. tvö ár og samanstendur af tólf lögum Jóhanns G. Jóhannssonar. Textarnir eru á ensku og hefur Stína samið nokkra þeirra. „Hann samdi lög sem maður hefur alist upp við og svo þekkir hann líka pabba minn. Hann var að vinna með þeim í Óðmönnum,“ segir Stína um Jóhann G og tilurð plötunnar.

Hún er mjög spennt fyrir tónleikunum og hljóðfæraleikurunum sem verða með henni. „Hérna eru manns rætur og hjartað er náttúrulega hér að miklu leyti,“ segir hún. „Maður er með súperstjörnuband með sér. Þeir voru allir rosahressir og til í hvað sem var.“

Stína mun jafnframt koma fram á menningarnótt, meðal annars í bakgarði verslunarinnar Nikita. Hún kom fram á tónleikum í gærkvöldi á Nasa með hljómsveit sinni Nista, sem spilar elektrórokk með poppívafi.

Stína heitir fullu nafni Kristín Birgitta Ágústsdóttir. Hún nam verkfræði við Háskóla Íslands og hefur frá barnsaldri verið við tónlistarnám og m.a. lagt stund á klassískan söng við Söngskóla Reykjavíkur. Þá var hún við tónlistarnám við Vocaltech, Concordia University í London. Eftir að hún fluttist búferlum til Kanada kom hún fram í söngleikjum eins og West Side Story og Chorus Line ásamt því að nema raddþjálfun hjá Silviu Peron. Ásamt því að vera meðlimur Nistu gerir hún það gott með AXXE og syngur jazz á eigin vegum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.