Lífið

Ekkert venjulegt víbradorapartý

MYNDIR/EÁ
MYNDIR/EÁ

Það hefur vart farið framhjá mörgum að sálfræðingurinn og rithöfundurinn Tracey Cox er stödd hér á landi.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Tracey ásamt fjölmörgum íslenskum konum sem kynntu sér kynlífstæki og bækur Tracey á veitingahúsinu Sólon í gær.

Tracey er heimsþekkt fyrir skrif sín á bókum um kynlíf og sambönd og hún hefur stýrt fjölmörgum sjónvarpsþáttum sem og að hún hannar eigin unaðstækjalínu undir nafninu Súpersex sem Femin.is selur. Sjá hér.

Við spurðum Tracey hvaða kynlífsleikfang hún telur að ætti að vera skyldueign hverrar konu. Hún svaraði um hæl: „Lítill kúlutitrari - Secret vibe! Hann er á stærð við tíðartappa og með sterkan titrara sem virkar einkar vel á snípinn. Hann er handhægur, hljóðlátur og mjög hentugur til nota í samförum með maka þar sem hann líkist alls ekki typpi og ætti því ekki að ógna karlmennsku makans," svaraði Tracey og hélt áfram:

„Ég er með einn slíkan titrara í minni hjálpartækjalínu og hann er söluhæsta varan mín og sú vinsælasta. Ég er alltaf að gefa vinkonum mínum svona titrara og þær elska hann! Titrarar eru ennþá mikil kynferðisleg líflína fyrir konur og margar konur segja hann nauðsynlegan til að fá fullnægingu."

Secret vibe fæst hjá Femin.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×