Íslenski boltinn

Jafnt hjá Val og Stjörnunni

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. Fréttablaðið/Anton
Valur og Stjarnan gerðu jafntefli í stórleik kvöldsins í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur í Garðabænum voru 2-2 eftir að Stjarnan komst tvisvar yfir.

Valsstúlkur hafa 33 stig á toppnum en Þór/KA er með 28 í öðru sætinu. Blikar hafa 26 stig og eiga leik til góða.

FH burstaði Grindavík 5-0 og KR og Haukar skildu jöfn 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×