Fram minnkaði í kvöld muninn í úrslitarimmunni við Val um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er 2-1 eftir að Fram vann dýrmætan sigur í Vodafone-höllinni, 29-27.
Valskonur hefðu getað tryggt sér titilinn með sigri. Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir Fram sem hafði frumkvæðið nær allan leikinn.
Hrafnhildur Skúladóttir skoraði ellefu mörk fyrir Val og Karen Knútsdóttir þrettán fyrir Fram.
Valskonur fóru betur af stað í leiknum í kvöld og náðu mest þriggja marka forystu. Eftir því sem á hálfleikinn leið komust Framkonur betur í leikinn og luku hálfleiknum með miklum glæsibrag. Staðan í hálfleik var 12-16, gestaliðið í góðri stöðu.
Valur skoraði fyrsta markið eftir hlé en fékk svo þrjú mörk í andlitið og staðan skyndilega orðin 13-19. Þetta var bil sem Valskonum gekk erfiðlega að brúa þrátt fyrir góðan stuðning áhorfenda.
Þeim tókst að minnka muninn í tvö mörk en komust ekki lengra. Fjölmargar misheppnaðar sendingar reyndust dýrkeyptar fyrir Val í leiknum. Oft á tíðum virtist of mikið óðagot á leikmönnum liðsins.
Eftir að hafa sýnt dapra frammistöðu í fyrstu tveimur leikjunum var öllu meira líf í Framkonum í kvöld. Mikil spenna er nú hlaupin í þetta einvígi og von á frábærum handboltaleik á sunnudag þegar liðin mætast í fjórða sinn.
Valur - Fram 27-29 (12-16)
Mörk Vals (skot): Hrafnhildur Skúladóttir 11/3 (15/4), Kristín Guðmundsdóttir 3 (4), Rebekka Rut Skúladóttir 2 (3), Hildigunnur Einarsdóttir 2 (4), Ágústa Edda Björnsdóttir 2 (5), Brynja Dögg Steinsen 2 (2), Íris Ásta Pétursdóttir 2 (3), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2 (5), Nína K. Björnsdóttir 1/1 (3/3), Katrín Andrésdóttir 0 (1).
Varin skot: Berglind Hansdóttir 14
Hraðaupphlaup: 2 (Rebekka, Hildigunnur)
Fiskuð víti: 6 (Ágústa 2, Íris 2, Nína, Brynja Dögg, Rebekka)
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Fram (skot): Karen Knútsdóttir 13/7 (18/7), Stella Sigurðardóttir 5 (9), Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 5 (7), Ásta Birna Gunnarsdóttir 3 (4), Hildur Þorgeirsdóttir 2 (5), Marthe Sördal 1 (3), Pavla Nevarilova 0 (1).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 9/1, Helga Vala Jónsdóttir 2/1.
Hraðaupphlaup: 4 (Stella, Ásta, Marthe, Guðrún)
Fiskuð víti: 7 (Pavla 2, Stella 2, Hildur, Ásta, Guðrún)
Utan vallar: 8 mín.