Handbolti

Framkonur í Höllina í fyrsta sinn í ellefu ár

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fram er komið í úrslitaleik Eimskipsbikarsins.
Fram er komið í úrslitaleik Eimskipsbikarsins. Mynd/Arnþór

Fram tryggði sér sæti í úrslitaleik Eimskipsbikars kvenna í handbolta með 20-29 sigri á FH í Kaplakrika í kvöld. Fram mætir annaðhvort Val eða Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn.

Stella Sigurðardóttir var markahæst hjá Fram með 8 mörk en Pavla Nevarilova kom næst með 6 mörk. Hjá FH var Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir markahæst með 9 mörk.

Nánari umfjöllun með tölfræði og viðtölum við leikmenn og þjálfara birtist á Vísi síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×