Handbolti

Stella: Betra liðið vann

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Mynd/Vilhelm

„Þetta er geðveikt. Ótrúlega gaman að vinna Stjörnuna hérna því að það var kominn tími á það. Mér fannst seinni háfleikurinn mjög góður hjá okkur í dag en fyrri hálfleikur aftur á móti slakur og við vorum að kasta boltanum klaufalega útaf. En í seinni hálfleik fór vörnin að ganga vel og þá er erfitt að sigra okkur," sagði Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram, eftir að Framstúlkur tryggðu leið sína í úrslit í N1-deild kvenna í handbolta.

Stella var ánægð með liðið sitt í dag og var einstaklega ánægð með seinni hálfleikinn þar sem Framstúlkur sigldu fram úr Stjörnunni og kláruðu leikinn.

„Þetta var mikill baráttuleikur og þær ætluðu auðvitað að koma hér brjálaðar og jafna einvígið. En við sýndum það í síðari hálfleik að við erum með mun betra lið og spiluðum okkar bolta," sagði Stella brosandi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×